Merki Mitt MailMitt Mail

ÍSLENSKT VIÐMÓT · NORÐURLJÓSAÞEMA

Allur pósturinn.
Undir þinni stjórn.

Innhólf, dagatal og verkefni á einum stað. Mitt Mail færir þér rólegt vinnusvæði í litum norðurljósanna — á tölvunni og í símanum.

Windows Linux Android
Mitt Mail
Mitt Mail í norðurljósaþema með póstmöppum, innhólfi og opnu skeyti
Þitt innhólf. Þitt vinnusvæði. Mynd úr forritinu · tilbúin dæmigögn

Pósturinn þinn.
Hvar sem þú ert.

Skoðaðu póst í vafra á tölvu og síma. Vefpóstur 0.4 styður Mitt Mail Server og ytri pósthólf sem leyfa IMAP/SMTP-innskráningu.

Skoða vefpóst ↗
webmail.mintonlist.is
Mitt Mail

Þitt innhólf. Þín tenging.

Vefpóstur · Mitt Mail Server og IMAP/SMTP

Veldu hvar þú vilt byrja.

Sama íslenska vinnusvæðið á tölvunni og í símanum. Veldu pakkann fyrir tækið þitt.

Niðurhal velur nýjustu útgáfu sem hefur verið sett á vefinn. Skoða útgáfusögu →

Mitt Mail með þér.

Sjálfstætt app fyrir Android 9 og nýrri. Sama norðurljósaþema og póstkjarni í farsímavænu viðmóti. Póstur vistast á símanum og innskráningar eru dulkóðaðar með Android Keystore.

Sækja Mitt Mail fyrir Android

Google / Gmail-innskráning notar Google Play services í símanum. Einnig er IMAP/SMTP eða POP með lykilorði eða forritslykilorði í boði þar sem þjónustan leyfir það. Microsoft-OAuth á Android er enn í þróun.

Android biður um leyfi fyrir APK-uppsetningu. Appið athugar nýjar útgáfur þegar það er opnað og býður að sækja þær; Android staðfestir uppsetninguna. Bakgrunnspóstathugun getur tafist vegna rafhlöðusparnaðar.

Sama Mitt Mail. Nýtt stýrikerfi.

Linux 0.19.31 er tiltækt fyrir Intel / AMD og ARM64 með PySide6. Viðmótið deilir sama póstkjarna og tölvuútgáfan. Framboð nauðsynlegra kerfispakka fer eftir Linux-dreifingu; notaðu apt við uppsetningu svo kerfið geti sótt þá.

Sækja Linux · Intel / AMD Sækja Linux · ARM64

Windows-útgáfan heldur áfram. Tengja þarf reikninga á hverri tölvu; Windows-innskráningarskrár flytjast ekki yfir á Linux.

Margir reikningar.
Einn staður.

Tengdu Gmail, Microsoft eða aðra studda póstþjónustu og skiptu milli reikninga án þess að fjarlægja þá fyrri.

Pósturinn með þér.

Niðurhalaður póstur og drög vistast á tölvunni. Þú getur lesið vistað efni án nettengingar; nýr póstur og sendingar þurfa samband við póstþjónustuna.

Meira rúm fyrir daginn.

Lesa og senda

HTML-skeyti, myndir, viðhengi og undirskriftir. Ríktextaritill og vistuð drög hjálpa þér að halda áfram þar sem frá var horfið.

Halda utan um

Möppur, leit og merkingar ásamt staðbundnu dagatali, endurteknum viðburðum, áminningum, tengiliðum, verkefnum og glósum.

Gera að þínu

Íslenskt viðmót, þrettán þemu og tilkynningar með sérhljóðum við nýjan og sendan póst. Forritið getur haldið áfram við klukkuna.

Frá innskráningu í innhólf.

  1. Settu upp Mitt Mail

    Veldu Windows-uppsetninguna eða Linux-pakkann og fylgdu leiðbeiningunum. Mitt Mail notar eigin forritsglugga á Windows. Innskráning og ytri tenglar opnast í sjálfgefnum vafra.

    Fara í niðurhal ↓
  2. Veldu póstþjónustuna þína

    Farðu í Stillingar → Póstreikningar. Veldu Google eða Microsoft og ljúktu innskráningu og samþykki hjá þjónustuveitandanum. Fyrir aðrar þjónustur eru IMAP/SMTP og POP3 með TLS í boði eftir stillingum þjónustunnar.

  3. Sæktu póst og byrjaðu

    Veldu Sækja póst. Nýr innhólfspóstur fær forgang og eldri saga hleðst á eftir. Bættu við fleiri reikningum þegar þú vilt.

Google-innskráning Mitt Mail er í yfirferð hjá Google og aðgangur getur verið takmarkaður meðan yfirferð stendur yfir.

Til hvers er póstheimildin?

Mitt Mail þarf aðgang til að sækja og sýna skeytin þín, senda póst sem þú útbýrð og samstilla þær breytingar sem þú gerir, svo sem möppufærslur og lestrarmerkingar. Gmail-tengingin notar IMAP og SMTP og biður því um póstheimildina https://mail.google.com/.

Gögn eru notuð til að veita þessa virkni. Póstgögn eru ekki seld, notuð fyrir auglýsingamiðun eða til þjálfunar almennra gervigreindarlíkana. Nánari upplýsingar um aðgang, vistun, miðlun og eyðingu má finna í persónuverndarstefnunni.

Lesa persónuverndarstefnu ↗

Hannað af áhuga.
Skapað af ást.

Mitt Mail er innblásið af áhuga mínum og ást á að hanna, skapa og búa til.

Útgefandi: 2024 ehf.
Gert af manni með brennandi áhuga á þessum málum.

Litir og merki Mitt Mail sækja innblástur í Akranes, Akrafjall og Langasand undir dansandi norðurljósum. Vinnusvæðið er hannað til að vera kunnuglegt, persónulegt og þægilegt í daglegri notkun.